miðvikudagur, október 04, 2006

Haust

Það er komið haust. Það kom á mánudaginn. Nú er rétt rúmlega tíu stiga hiti, grátt, rigning og laufin falla af trjánum. Samt eru þau enn nokkuð græn, mig langar að fara í ferð út fyrir Leipzig eftir mánuð þegar laufin eru rauð og appelsínugul og gul - ekki amalegt.

Er reyndar búin að ákveða að fara til Svíþjóðar og Danmerkur í heimókn síðustu helgina í þessum mánuði. Verð kannski bara að láta mér nægja að skoða litskrúðug lauf með Elínu og Öglu. Jeei jeei, það verður gaman. Er að hugsa um að taka rútu - mig minnir að Agla og Vladi hafi gert það og sloppið vel frá því!

Í gær var frídagur - haldið upp á sameiningu Þýskalands. Á þessum degi er hefð hjá nýnasistum að marsera í gegnum Leipzig og margir öfga-vinstrisinnar mótmæla þessari göngu með því að brjóta rúður og kveikja í bílum. Hm. En svo er miðjufólk sem kann að mótmæla án þess að skemma neitt og standa bara með skiltin sín í rigningunni. Lögreglan var alls staðar sjáanleg, lögreglumenn og konur með risastórar byssur og ýmis önnur vopn, þyrlur fljúgandi yfir borgina allan daginn - frekar óhuggulegt eitthvað. Ætlaði varla að þora að hjóla heim úr vinnunni í gær, löggan stoppaði Hannes þrisvar á leið í vinnunna og skipaði honum að fara aðra leið en hann ætlaði. En ég komst heim án þess að lenda í löggunni. Fór snemma heim því það var nú einu sinni frídagur, og bakaði 'Elínarbrauð', mmmm - með sólblómafræjum og osti. Mjög gott.

Hlakka til að kíkja yfir til Elínar og Öglu, verðið þið ekki örugglega heima???

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Nú líst mér vel á þig stelpa :):) Verð að sjálfsögðu heima til að taka á móti þér ;) Hlakka ýýýýkt til mar :):):)

7:56 f.h.  
Blogger ellen said...

Marcel ætlar að koma með líklegast... er nóg pláss?

8:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Glæsilegt :) Nóg pláss ;)

9:41 f.h.  
Blogger Agla said...

Ég er líka heima og nóg pláss fyrir alla :) Verdur ýkt gaman :D Hvad segidi um ad vera um helgina í DK og thá geta allir gist hjá okkur (líka thú elín og gudjón)....nóg er allavega plássid ;)

3:27 f.h.  
Blogger ellen said...

Já - Marcel var einmitt að tala um það að það gæti verið sniðugt, að gista hjá ykkur allan tímann og kíkja svo bara yfir til Svíþjóðar í heimsókn yfir daginn, fyrst þið eruð með svona mikið pláss... og svo við þurfum ekki að vera að flytja dótið á milli. Hvað segir Elín um það??? Kannski löngu hætt að fylgjast með kommentum á gömlum pósti..!

5:28 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home