miðvikudagur, september 20, 2006

Ferðalag til Indlands

Jibbíjeijei, ég er að fara á ráðstefnu til Indlands, nánar tiltekið Hyderabad sem þið sjáið fyrir miðju á kortinu í græna héraðinu! Hef ekki komið þangað áður, svo þetta verður heljarinnar ævintýri. Bryndís er líka að fara - ekkert smá gaman að eiga vinkonu í sama geira. Aggi gamli leiðbeinandi og konan hans og að sjálfsögðu hinn mikli Kári Stefáns.

Ég fer í byrjun des, verð vonandi viku tíu daga, ráðstefnan sjálf er í þrjá daga en svo verð ég nú að taka smá frí með Bryndísi og skoða og versla. Jibbíjeijejeiii, ég er afar spennt.

Bryndís og Bjarki koma í dag - ætla svo að halda innflutningspartý á föstudaginn loksins, það verður gaman að hafa íslenska vini viðtstadda :)

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ohh hljómar ekkert smá spennandi ævintýri. Til hamingju með þetta skvís :)

3:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Össs, hljómar ekkert smá vel. Briljant að fara aftur til Indlands:) Láttu mig vita ef þig vantar einhvern til að bera töskurnar þínar ;) hehe.

4:42 f.h.  
Blogger ellen said...

já, ég er geðveikt spennt - var að ræða þetta við bryndísi í gær, ætlum að vera í tíu daga, koma aðeins fyrr og vera aðeins lengur. Jibbííí.

5:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá, ótrúlega flott hjá ykkur, það verður spennandi að sjá hvað kemur upp úr jólapökkunum í ár..., geggjað að bryndís fari með og að þú hittir agga og önnu, gaman gaman...

6:51 f.h.  
Blogger ellen said...

Ah.... góð hugmynd! versla jólagjafir, schniiiilld.

7:44 f.h.  
Blogger Agla said...

Ótrúlega skemmtilegt :D Væri thvílíkt til ad fara á rádstefnu á framandi stad...ætla ad fara ad tékka hvad er í bodi...fékk innblástur ;)

11:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Tékkaðu á the whitest boy alive! Þeir eru að spila í heimabænum þínum 25...bara skemmtilegir:)
www.myspace.com/thewhitestboyalive

9:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home