föstudagur, september 29, 2006

Jóla hvað?

Búin að kaupa mér far heim um jólin :)

Kem 22. des, seint og fer 8. jan. síðdegis. Jibbí, hlakka mikið til að hitta alla og upplifa íslenska jólastemningu. Á ekki að plana eitthvað mega áramótapartý? Elín að flytja heim og svona - það verður að halda ærlega upp á þetta.

Hlakka til að borða íslenskan svínahamborgarahrygg, laufabrauð, möndlugraut, rauðvínssóusuna hennar mömmu, kálið og allt tilheyrandi. Æði.

Fór upp á þak áðan að lesa grein um uppruna samfélaga sem ég þarf að halda fyrirlestur um eftir nokkra daga og þurfi að flýja eftir korter, það var of HEITT. Glampandi sól og hiti - vonandi heldur þetta áfram um helgina því það er búið að skipuleggja bátsferð á sunnudaginn í tilefni afmæli Claudieh. Gaman gaman (ef sólin heldur áfram að skína).

Góða helgi.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

sælar
Frábært hlakka til að sjá þig um jólin en verður þú til 8.júlí....Verður nú gaman að sjá ykkur stelpurnar aftur :)

kv Guðbjörg M

8:35 f.h.  
Blogger ellen said...

Úpps ruglaðist, búin að laga það...

9:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehehe grunaði það :)

kv Gm

9:54 f.h.  
Blogger Lilja said...

Frábært að þú verðir til 8. jan -líst vel á það. Jú við gerum eitthvað geðveikt gaman og tjúttum ..plús höfum það huggó líka ;). Knúsi-mús kæra vinkona :*. Hlakka mikið til að fá þig :).

3:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Brilljant :) Þarf maður að fara að panta tíma til að hitta þig yfir einum kaffibolla eða svo??? :)

1:26 e.h.  
Blogger ellen said...

Er laus 5. janúar milli 3 og 4.

Hohohohohohohohooooo. Ég hef tíma fyrir ykkur öll :):):) Enda kem ég alein og hef engin önnur plön en að hitta vini og ættingja, hanga á kaffihúsum og drekka kaffi/bjór og fara í heimsóknir. Jeremías hvað ég hlakka til!

5:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home