þriðjudagur, maí 01, 2007

Þægilegar velúr buxur


find your inner clothing style @ quizmeme.com

Hahahahahaha, ég var að lesa bloggið hennar Skottu og sá þetta próf sem hún hafði tekið og ákvað að eyða óþörfum tíma í að taka það líka. Prófið heitir "hvers konar flík ert þú?" og hér kemur það, ég er "þægilegar velúr buxur". Sem er mjög lýsandi fyrir hugarástand mitt þessar vikurnar, ég er eins og heimakær húsmóðir sem nennir ekki út, ég hreinlega elska að vera heima. Á laugardaginn var ég búin að lofa Söru og Nandini að kíkja út með þeim, en eftir heilan dag á ströndinni var ég svo uppgefin að ég hreinlega gat ekki slitið mig frá sófanum. Ég var hæstánægð með að liggja upp í sófa í náttbuxunum með popp og súkkulaði og horfa á vidjó. Svo í gær var ég búin að lofa Söru að kíkja út með henni, því það er frídagur í dag, og ég stóð við loforðið (þótt ég hefði fremur kosið sófann kæra), en fór snemma heim með stórt bros á vör, skellti mér í bleiku velúr náttbuxurnar um leið og ég kom inn úr dyrunum og skellti mér upp í sófa og horfði á Curb your enthusiasm, loksins kom serían sem ég keypti mér á ebay, keypti allar seríurnar á hundrað evrur :)

Svo þetta próf lýgur ekki. Þetta er ég í hnotskurn: þægilegar velúr náttbuxur.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ahah ég varð auðvita að prófa þetta líka. Ég er reyndar sunny beachware. Textin sem fylgi er að ég er laid back and optimistic, love nature and sunny days at the beach. Spurning um að flytja eitthvað annað þar sem ég fæ ansi fáa sólarstranddaga hérna á Íslandi ;D

3:15 f.h.  
Blogger Agla said...

Ég prófadi og var líka sunny beachware!!....viljum greinilega bádar vera í sólinni Sóla ;)

3:43 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég mátti til með að prófa líka og viti menn, ég er líka comfy velúr....var að spá hvort þetta væru ellimerki??? hehe

/eb

2:42 e.h.  
Blogger ellen said...

Hehe, já elín mín, við erum orðnar gamlar og settlegar! Oh, það er svo gott... :)

2:54 e.h.  
Blogger Gudbjorg Th. said...

merkilegt, ég er líka Sunny Beachwear. Ég hefði pottþétt haldið að ég væri comfy velúr. Hummm

8:50 f.h.  
Blogger ellen said...

Ætli það sé ekkert annað í boði en sunny beachwear og comfy veúr?

12:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hí hí hí, örugglega ekki, ég var a.m.k. þægilegar velúrbuxur en mamma hins vegar "sólar-strandfatnaður"...

xxxh

4:27 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home