miðvikudagur, apríl 25, 2007

Fylgifiskar doktorsnáms hjá Max Planck


Zambía. Í miðri Afríku. Og hver fær að fara til Zambíu? drummdrummmdrrrruuuummm.... ÉG!!!! jíbbbíjeeeeeiiii!

Nýi doktorsnemi Brigitte (kærasta Marks, hún er með sinn eigin rannsóknarhóp hjá Max) komst ekki með til Zambíu og hún bauð mér að koma með í staðinn. Þau er að fara þangað að safna sýnum í 6 VIKUR og ég fer sem aðstoðarmaður ;) Fer í lítil þorp og safna sýnum með Cecare, ítalska nema Brigitte. Vá. Ég get ekki unnið ég er svo spennt...

10 Comments:

Blogger Gudbjorg Th. said...

Vá frábært, heppin ertu :)

2:37 f.h.  
Blogger Agla said...

Til lukku med thetta :D Ekkert smá frábært :D

2:57 f.h.  
Blogger ellen said...

já, ýkt heppin! Ég elska vinnuna mína!!!

5:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

AAAAAlls ekki leiðinlegt skvís...en eeeeendilega láttu mig vita ef það vantar annan aðstoðarmann ;)

10:49 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu að grínast? Litla stúlkan sem ég er að styrkja býr í þorpi sem heitir Kitwe í Zambíu -ertu nok að fara þangað?? Heppin ertu -ég samgleðst þér. kv. Lilja.

2:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá til hamingju skvís. Hvenær ferður skvís??? Uhmm spurning um að fara skipta um vinnu??? ;D

4:40 e.h.  
Blogger ellen said...

Hver veit nema ég fari í þorpið Kitwe, veistu hvar í Zambíu það er? Ég verð aðallega í vesturhlutanum... ég heilsa upp á hana ef ég fer þangað!

Ég fer 2. ágúst og verð fram í miðjan september. Gleði gleði, ég ég kvíði líka smá fyrir... Ég ætla að kaupa mér Lonely Planet um Zambíu, koma mér í gírinn.

1:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ok, þetta er geðveikt, skal reyna að vera mjög jákvæð og hætta þessari blessaðri paranoju alltaf hreint. Auðvitað mun þetta ganga vel hjá þér og verða ótrúlega ótrúlega dýrmæt og skemmtileg reynsla, í rauninni bara a dream comes true lífsreynsla fyrir þig ekki satt?

Ástarkveðjur, Helga stóra systir (sem vill hafa þá litlu svolítið undir vængnum...)

3:49 f.h.  
Blogger ellen said...

En ég er ekki lengur lítill ungi... ;) þetta verður mikið ævintýri og Afríka var einmitt sú heimsálfa sem mig langaði næst að heimsækja - veit lítið um Zambíu en ætla að panta Lonely Planet núna barasta :)

8:46 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju vá ekki smá ævintýri :) kv Guðbjörg M

4:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home