Helgarplön
Jæja, þá er búið að plana helgina ;) Þetta er kosturinn við að vinna hjá stóru fyrirtæki með mörgum útlendingum, margir í sömu sporum svo fólk innan vinnustaðarins hittist mikið utan vinnu, mér til mikillar ánægju og gleði því annars væri afar einmanalegt hér. Svo ég ætla að hitta vinnufélagana á hinum vinsæla stað "Beyerhaus" í kvöld og fá mér bjór eða tvo. Svo á morgun er önnur stúlka úr vinnunni búin að bjóða mér með sér á skemmtistað sem er svona í "fínni" kantinum, sem verður skemmtileg tilbreyting frá hinum stöðunum sem ég hef farið á. Annars ætla ég að vinna á morgun, reyna að fá sýnin mín til að virka. Er með nokkrar hugmyndir í viðbót áður en ég gefst upp. Fólk er búið að vera ansi duglegt við að ráðleggja mér, svo ég er enn með nokkur spil á hendi.
Keypti mér Architecture in Helsinki í Edinborg, mörg mjög fín lög á þessum disk sem fékk svo góða dóma hjá pitchfork sem er mjög góð tónlistarsíða sem ég treysti vel fyrir plötudómum.
Átti afar indælt gærkvöld, fór í nýju fínu þykku náttfötin mín klukkan sjö og lagðist upp í rúm og horfði á Manhattan sem er frábær mynd. Horfði einnig á fimm Seinfeld þætti, schniiiiilld.
Kvöldið í kvöld verður vonandi aðeins hressara.
Góða helgi.

1 Comments:
Gott að heyra að þér leiðist ekki þarna skvís. Ég sá einmitt Architecture in Helsinki á Airwaves og þau voru algjör snilld. Mjög hress og lifandi flutningur hjá þeim. Ég á eftir að kaupa mér e-h með þeim sjálf. Kv Sóla
Skrifa ummæli
<< Home