miðvikudagur, júní 01, 2005

Kveðjustundir

Jæja, búin að fara á Fulbright skrifstofuna og skrifa undir það að ég muni taka við styrknum. Er þetta sem sagt ákveðið núna? úff... á eftir að átta mig á þessu öllu saman held ég. Svo þegar maður er farinn að kveðja fólk þá fer þetta líka að verða svolítið alvöru. Kvaddi Tinnu frænku áðan. Hún er að fara til Noregs og kemur ekki heim fyrr en 30. ágúst. Þá verð ég farin. Mér fannst erfitt að kveðja hana, varð klökk. Ég þoli ekki kveðjustundir, mikið kvíði ég að kveðja alla hina :( Sérstaklega Míó, en ég er alvarlega að hugsa um að taka hann með. Var að fá email frá Höllu, íslensk stelpa sem er í Penn State og hún sagði mér að ein stelpa fór með tvo hunda og tvo ketti með sér út og það gekk allt vel! Mig laaaangar svo að hafa hann með, bara spurning með hvernig ég fer að því... hvað ætli kisur séu lengi að jafna sig eftir tíu tíma ferðalag? Hvort ætli honum líði betur með að vera hér heima hjá ókunnugum, eða leggja á sig tíu tíma ferðalag og vera með mér? Hvað haldið þið?

1 Comments:

Blogger Agla said...

Mér finnst þú eigir að taka hann Míó með, ekki spurning. Það er svo gott að hafa e-ð kunnugt andlit í kringum sig þegar maður er í ókunnugu landi :)

8:42 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home